Wednesday, August 1, 2012

Nú er ég komin



Jæja nú er ég komin aftur, eða eigum við að segja að macinn minn er kominn aftur til mín eftir miklar viðgerðir. Gott að vera búin að fá hann aftur. ;)

Ég er ein af þeim sem verður alltaf að vera að gera einhverja handavinnu og því er allt heimilið skreytt með einhverju handunnu. þessi hjörtu gerði ég eftir einhverju sem ég sá á netinu í vor, Þau eru algjört æði eftir að ég kláraði þau og hanga um allt hús. 

Við mæðgurnar (3) fluttum í hús mannsins míns fyrir nokkrum árum og því þurfti að sameina húsgögn og punterí sem var allt í lagi og hefur gengið bara vel. Dóttir minni ofbauð nú sammt þegar að ég var að setja upp þessi hjörtu um allt hús og sagði við mig „mamma hvað ertu búin að gera við húsið hans GG, þú ert búin að taka allt matco í burtu og gera allt mjúkt og dúllulegt“. Þetta fanst mér alveg ferlega sniðugt hjá henni. Svo kom dóttir hans og sagði að það hafði orðið krúttsprengja í húsinu hans pabba. Algjörar dúllur.

PS. ég var svo ánægð í dag þegar að ég uppgörtaði að mitt uppáhalds blogg er opið aftur. Hún heitir Mia og ég setti linkinn hérna til hliðar. Endilega kíkið á hana, hún er með frábært blogg.

Sunday, May 20, 2012

Halló

Halló og velkomin á þessa síðu.

Ég er fimmtug húsmóðir í litlu bæjarfélagi úti á landi. Mín aðaláhugamál er handavinna og því er ég með aðra síðu sem ég hef verið að setja inn það sem ég hef verið að gera. Hérna ætla ég að setja inn allt mögulegt sem að ég hef áhuga á þá stundina og því verður þetta mjög blandað blogg.

Núna er til dæmis komið vor og ég á fullu í garðinum mínum og að undirbúa garð sem að ég á hérna upp í sveit. Þar verður grænmetisgarðurinn og eins ætla ég að setja niður alls konar tré sem að mér finnst falleg. Í sumar fæ ég svo tvö eplatré sem að ég er voða spennt fyrir. Við erum með góða aðstöðu þarna og þetta er ekki nema 15 mín keyrsla frá heimilinu okkar.

Þessa dagana er ég alveg að tapa mér yfir öllum hvítu bloggunum sem ég er að finna. Ég er og hef alltaf frá því að ég sá þetta fyrst fyrir mörgum árum í ameríska sjónvarpinu verið voða hrifin af þessum stíl og var með nokkuð ljóst heimili þegar að ég var ein með stelpurnar mínar eftir að ég skildi við fyrri manninn minn. Núverandi sambýlismaður er ekki svo hrifinn af svona stíl svo að það verða að vera litir hérna hjá okkur ;)  Ég hef alltaf verið alveg rosalega hrifin af bleikum lit og því er hann ráðandi í okkar húsi og blandaður með hvítu eða ljósu þá gerist það ekki fallegra í mínum augum.

Hérna er flassið á og engin stemming
Ekkert flass og svaka góð stemming

Nýi dúkurinn minn og kertaljós
Um daginn var ég í stofunni að prjóna með kertaljós og kósý hjá mér ein heima, þegar að mér datt í hug að reyna að ná þessu á mynd. Það er bara svo skrítið að það næst ekki stemmingin sem ég fann fyrir. En svona er borðstofan hjá okkur. Ég elska kertaljós og kósý stemmingu.

Eigið gott kvöld
kv Soffía